top of page
ÍBÚÐ TIL LEIGU Í SKÁLATEIGI 7, AKUREYRI.

 

Um er að ræða 4ra herbergja íbúð (3 svefnherbergi) með geymslu og bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er 100,7 fm og á tveimur hæðum. Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu rými og inngangur íbúðarinnar. Á neðri hæð hennar er baðherbergi, eitt svefnherbergi og útgangur á verönd. Leiguverð er 195.000 kr. á mánuði, innifalið er hiti, rafmagn og hússjóður. Íbúðin er til skamm- eða langatímaleigu. Reiknað er með að íbúðin sé leigð með innbúi en það er inn í myndinni að koma því öllu eða hluta í geymslu. Íbúðin gæti einnig verið leigð þremur einstaklingum og væri þá leigan 65.000 kr. á mánuði á mann. Einstaklingar mega því einnig hafa samband og ef þrír einstaklingar sýna áhuga gæti ég leigt íbúðina þannig út. Allt dýrahald er bannað í íbúðinni. Hafið endilega samband í síma 863-7013 eða með tölvupósti í netfangið krsoley@gmail.com.

EFRI HÆÐ: INNGANGUR OG SVEFNHERBERGI

 

Íbúðin hefur sérinngang. Myndir sýna forstofu og fyrra svefnhergbergið á efri hæð.

EFRI HÆÐ: ELDHÚS, STOFA OG SVEFNHERBERGI

 

Íbúðin hefur eldhús og stofu í opnu rými. Myndir sýna stofuna, eldhúsið og seinna svefnherbergið á efri hæð.

NEÐRI HÆÐ: STIGI OG VERÖND

 

Íbúðin hefur teppalagðan stiga. Á neðri hæðinni er lítið svæði sem leiðir að verönd, svefnherbergi og baðherbergi. Myndir sýna stigann, neðri hæðina og veröndina.

NEÐRI HÆÐ: BAÐHERBERGI OG SVEFNHERBERGI

 

Á baðherberginu er einnig þvottavél. Myndir sýna baðherbergið og svefnherbergi á neðri hæð.

 

 

 

Hafið endilega samband í síma 863-7013 eða með tölvupósti í netfangið krsoley@gmail.com

bottom of page